Dagur í lífi dæluhafa

Minimed Insúlíndælan hjálpar þér að auka sveigjanleika í þínu lífi, þú getur sofið, borðað og æft þegar þú vilt.
Dagur með Minimed insúlíndælu er dagur þar sem þú getur slappað af og einbeitt þér að þeim hlutum sem þú hefur áhuga á.  Dælan býður upp á óteljandi möguleika til að aðlaga insúlínskammtana eftir þínum þörfum á hverjum tíma.

Hér er dæmisaga um líf með insúlíndælu


Laugardagur
Kl. 9.00
Þú ert þreytt/ur eftir skemmtilega kvöldstund með vinum kvöldið áður. Þú sefur lengur en vanalega til að vera hress fyrir daginn sem er framundan.
Kl. 9.30
Tilhugsunin um uppáhalds morgunmatinn þinn fær þig til að rísa úr rekkju. Með dælunni getur þú betur stjórnað hvenær þú vilt borða.
Kl. 11.00
Vinur þinn hringir og spyr hvort þú viljir koma í hjólreiðatúr.  Þú er alveg til í það þar sem þú getur lækkað insúlínskammtana eftir þörfum á meðan þú hjólar.  Það er auðveldara að komast í gott líkamlegt form þegar þú getur æft á þeim tíma sem hentar þér.
KL. 13.30
Eftir langan og erfiðan hjólatúr þráir þú að komast í afslappandi sturtu.  Með því að nota Medtronic Minimed Quick Set© getur þú á auðveldan hátt tekið dæluna og slönguna af þér áður en þú ferð í sturtu.
Kl. 18.30
Jafnvel þó þú hafir lokið við að borða kvöldmat getur þú ekki neitað smá pizzubita með vinum áður en þið farið í bíó.  Með dælunni er auðveldara að stilla máltíðarskammtinn (bolus) eftir innihaldi hverrar máltíðar.
Kl. 22:30
Eftir bíóið fer vinahópurinn á kaffihús þar sem myndin er rædd yfir bolla af cappuccino.  Inni í fólksfjöldanum setur þú dæluna á titring í stað hljóðmerkja og finnur til öryggis þar sem þú veist að dælan mun á hljóðan og öruggan hátt láta þig vita ef rafhlöðurnar eru að klárast eða insúlínhylkið er að tæmast.


Einfaldaðu líf þitt með insúlíndælu