INSÚLÍNDÆLUR

Insúlíndæla er lítið tæki sem dælir insúlíni til líkamans jafnt og þétt í litlum skömmtum yfir sólahringinn. Dælan er stillt fyrirfram eftir því sem líkaminn þarf fyrir hvern og einn og því er t.d. hægt að hafa minni grunn yfir nóttina eða yfir ákveðið tímabil dagsins þegar blóðsykurinn iðulega hár. Þessi stöðugi insúlínskammtur kallast grunnskammtur (Basal). Einnig er gefinn máltíðarskammtur (Bolus) sem gefinn er fyrir máltíðir og til að lækka háan blóðsykur.

 

Engin nál er í líkamanum heldur fer insúlínið í gegnum plastlegg sem skipta þarf um á 3 daga fresti. Því er aðeins ein stunga þriðja hvern dag í stað 3-6 hjá þeim sem eru á pennameðferð. Með því er auðveldara að gefa sér margar insúlíngjafir á dag og líkja eftir heilbrigðu brisi. Insúlínleggurinn er yfirleitt staðsettur á maganum en einnig er hægt að hafa hann á rasskinn, upphaldlegg eða á læri. Plastleggurinn er ekki viðkvæmur fyrir hnjaski.

 

Dælan er geymd í vasa eða hún er hengd í buxnastreng. Einnig er hægt að geyma dæluna í brjóstahaldara eða utan um mitti með sérstöku teygjubindi. Þegar farið er í sund og við erfiðari æfingar er dælan aftengd. Þó má ekki aftengja insúlíndæluna lengur en 1-2 klukkustundir í senn en hægt er að gefa insúlíngjafir inn á milli ef dælan þarf að vera aftengd lengur.

 

Dælunni fylgir tölvuforrit sem heitir Carelink og gefur mun betri upplýsingar en áður hefur verið hægt að sjá. Meðferð hjá heilbrigðisstarfsfólki er farin að miðast að miklu leiti við upplýsingar úr Carelink forritinu hjá dælufólki.

 

Rannsóknir sýna að meðferð með insúlíndælu leiðir til betri blóðsykurstjórnun og bæti lífsgæði þeirra sem eru með sykursýki. Langtímagildið (HbA1c) lækkar í flestum tilvikum og blóðsykursveiflur minnka. Það sem skiptir mestu er að dagleg líðan verður betri og fólk fær aukið svigrúm til að lifa fjölbreyttu og innihaldsríku lífi þrátt fyrir sykursýki.