Reynslusögur frá fólki með insúlíndælu

Reglulega heyrum við sögur frá fólki sem segir okkur frá jákvæðri reynslu sinni af insúlíndælumeðferð. Við viljum endilega að sem flestir heyri þessar sögur, sérstaklega ef það getur hvatt aðra sem eru á insúlíndælumeðferð og þá sem ekki enn hafa tekið þá ákvörðun um að reyna meðferð með insúlíndælu.

Hér til hliðar eru sögur frá fólki sem hefur mismunandi reynslu af insúlíndælumeðferð. Við fáum að kynnast nokkrum insúlíndæluhöfum og reynslu þeirra af insúlíndælunni.

Ef þig langar að miðla þinni reynslu á vef okkar svo það geti hjálpað öðrum, hvetjum við þig til að hafa samband við Sigrúnu eða Júlíus hjá Inter Medica.

Bestu þakkir.