• Kolvetnatafla - spjald til prentunar - frá dæluhafa

    Hér kemur kolvetnatafla eða spjald sem við fengum frá einum dæluhafa, þetta er í þrírit (3 spjöld) sem þið getið editerað að vild, prentað út, klippt og jafnvel plastað, passar vel í vasa eða veski.

     

    21. Nov - 16:01
  • Kolvetnaleikir með Lenny á netinu

    Nú er hægt að fara í kolvetnaleiki með Lenny á heimasíðu Lenny. Það er líka hægt að sækja og spila þessi leiki á iPad, iPhone og fljótlega einnig á símum með Android stýrikerfi.

    Smellið hér til að spila leikina á netinu:

    http://www.lenny-diabetes.com/games-n-apps.html

    18. Nov - 14:15
  • Fræðslufundur 31. október

    Þann 31. október var haldið Fræðslunámskeið í húsakynnum Inter Medica fyrir fólk með insúlíndælu.

     

    Fjallað var um Bolus Wizard, Carelink og kolvetnatalningu. 13 manns mættu auk aðstandenda og voru miklar og skemmtilegar umræður.

    Fyrirlesarar voru Arna læknir, Þóra hjúkrunarfræðingur og Sigrún og Júlíus frá Inter Medica.

    Fyrirhugað er að halda fleiri námskeið á næstu mánuðum og biðjum við fólk með insúlíndælu að fylgjast með því fundarboð verður sent út á tölvupósti.

    31. Oct - 17:49
  • Fræðslufundur fyrir krakka á aldrinum 17-25 ára

    Laugardaginn 26. febrúar var haldinn fræðslufundur á vegum Inter Medica í samstarfi við Göngudeild sykursjúkra og Barnaspítalann.

    Á fundinn mættu um 20 krakkar með góða skapið og insúlíndælurnar sínar. Ragnar Bjarnasson læknir, Arna Guðmundsdóttir læknir, Bertha M. Ársælsdóttir næringarfræðingur og Stefán Pálsson dæluhafi og Íslandsmeistari á gönguskíðum héldu erindi.

    26. Sep - 13:05