Ábyrgðaraðili: AZ Medica, kt. 630792-2079, Skemmuvegi 6,200 Kópavogi.

Símanúmer: 564-5055

Netfang: medica@medica.is

AZ Medica safnar framgreindum upplýsingum til þess aðhægt sé að afgreiða pöntun þína og til þess að standa við skuldbindingar sínargagnvart þér. Vinsamlegast athugaðu að upplýsingarnar teljast til viðkvæmrapersónuupplýsinga í skilningi laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinganr. 90/2018 („persónuverndarlög“). Fyrirtækið vinnur með þær á grundvellisamþykkis þíns.

AZ Medica miðlar persónuupplýsingum til þriðju aðila semráðnir eru af fyrirtækinu til að vinna fyrirfram ákveðna vinnu, til dæmis til þjónustuveitendasem sjá um að geyma gögn. Fyrirtækið nýtir eingöngu þjónustu slíks aðila efhann getur sýnt fram á að hann gæti fyllsta öryggis við meðferð upplýsinganna.Auk þess gerir AZ Medica vinnslusamning sem skuldbindur hann til að fylgjafyrirmælum fyrirtækisins og er honum óheimilt að nota þær í öðrum tilgangi.

AZ Medica gæti einnig miðlað persónuupplýsingum til þriðjaaðila sem ekki er bundinn fyrirmælum fyrirtækisins um meðferð þeirra, til dæmistil Sjúkratrygginga Íslands svo þú getir nýtt rétt þinn samkvæmtalmannatryggingalöggjöf. Einnig má nefna birgja fyrirtækisins en nauðsynlegtgetur verið að deila upplýsingum með þeim ef vara virkar ekki með tilskildumhætti. Lagaskylda hvílir á birgjum að rannsaka slíkt tilvik.

AZ Medica geymir einungis persónuupplýsingar í þann tímasem nauðsynlegt er fyrir fyrirtækið að hafa þær undir höndum. Bókhaldsgögn eru varðveittí sjö ár.

Einstaklingar njóta ákveðinna réttinda samkvæmtpersónuverndarlögum, svo sem til að afturkalla samþykki sitt, réttar tilaðgangs að gögnum, réttar til að fá rangar eða villandi persónuupplýsingarleiðréttar, réttar til að persónuupplýsingum verði eytt, réttar til að hindraað unnið verði með persónuupplýsingar, réttar til að flytja eigin gögn ogréttar til að leggja fram kvörtun hjá eftirlitsaðila, þ.e. Persónuvernd(www.personuvernd.is). Hafa ber þó í huga að réttindi einstaklinga eru ekkialltaf fortakslaus og kunna að vera háð ýmsum skilyrðum.

Hafir þú frekari spurningar um hvernig fyrirtækið meðhöndlar þínar persónuupplýsingar getur þú beint fyrirspurnum á personuvernd@medica.is.